77P Advisory
Leiðsögn í tækni, rekstri og upplýsingaöryggi.
Frá stefnu í framkvæmd.
Nálgunin
Tækni ein og sér leysir ekkert — það er tengingin við fólkið og markmið starfseminnar sem skiptir mestu máli. Ég skil bæði smáatriðin og heildarmyndina — hvernig kerfi, ferlar og fólk tengjast og hvar yfirsýn skortir þegar fyrirtæki vaxa eða breytast.
Þjónusta
01
Þróa tæknistefnu og koma henni í framkvæmd í gegnum lykilverkefni — með verkfærum sem henta hverju fyrirtæki.
02
Móta öryggisstefnu og byggja upp öryggisstjórnkerfi sem fanga raunverulegt verklag og virka í daglegri starfsemi — ekki bara til skrauts fyrir úttektir.
03
Uppfylla auknar kröfur vegna regluverks í gegnum raunverulegt öryggisstjórnkerfi sem þjónar rekstrinum.
04
Óháð tæknileg úttekt við kaup eða sölu á fyrirtækjum — skýr mynd af innviðum, áhættu og tækifærum.
05
Stöðugur stuðningur við rekstur og þróun upplýsingaöryggis og framkvæmd tæknistefnu — í gegnum lykilverkefni.
06
Skýrari mynd af tæknilegum innviðum, tengslum kerfa og áhættu — grundvöllur betri ákvarðanatöku.
Um 77P
Ég hef um tvo áratugi starfað þar sem tækni, rekstur og skipulag mætast — fyrst sem einn af fyrstu starfsmönnum Nova þar sem ég byggði upp og leiddi upplýsingatækni fyrirtækisins frá grunni.
Í dag starfa ég sjálfstætt í gegnum 77P og vinn með fyrirtæki sem þurfa að tengja saman stefnu, rekstur og tækni á skilvirkari hátt.
Tækni, öryggi og regluverk eru að verða óaðskiljanleg. Fyrirtæki þurfa einhvern sem skilur alla þessa þræði — og getur hjálpað til við að sjá skýrar og taka betri ákvarðanir.
Samband
Ef þú ert að velta fyrir þér hvort hlutirnir séu að keyrast áfram án skýrrar stefnu — þá er gott að taka stutt samtal.